Hvít Jól lógó

  

Jólapakki saman

  

 

marita logo

  

IOGT - int logo

  

logo ACTIVE

Vertu þú sjálfur

Aðeins þú, ert þú sjálfur og enginn annar getur upplifað það sem þú upplifir. Enginn annar hefur þína hæfileika og eiginleika. Veröldin er full af einstökum börnum sem eru öll sérstök. Við eigum samt eitt sameiginlegt, við erum öll mikilvæg og erum öll jafn mikils virði sem börn.

Barnahreyfing IOGT

Á að vera öruggur staður fyrir börn, þar sem þau fá að vera þau sjálf um leið og þau læra að umgangast aðra og skemmta sér.

Notkun áfengis og annarra vímuefna skaða börn um allan heim. Sum börn skaðast vegna neyslu fullorðinna hérlendis. Aðrir byrja neyslu, jafnvel á unga aldri. Neysla getur eyðilagt framtíðardrauma barna. Það er erfitt að segja hvaða áhrif neyslan mun hafa á vandamál síðar í lífinu. Við vitum að því fyrr sem neysla byrjar, því meiri líkur eru á vandamálum síðar.

Í dag, læra mörg börn að áfengisneysla er hluti af uppvextinum. Það þarf ekki að vera sjálfsagt. Margir fullorðnir velja vímulausan lífsstíl. Í Barnahreyfingu IOGT, læra börnin að þau hafa val, þegar þau verða fullorðin. Þetta krefst þess að við höfum sterkt sjálfsálit, og að við trúum á okkur sjálf. Við sjáum og vitum að við getum búið til gott samfélag, laust við misnotkun áfengis og vímuefna.